Hótel Flatey býður til tónlistarveislu í sumar
Mynd: www.hotelflatey.is
Gömul pakkhús, nálægð við náttúruna og vinsælir tónlistarmenn skapa einstaka stemningu á Flatey í Breiðafirði
Náttúrulegur sjarminn í gömlu þorpi
Hótel Flatey stendur í hjarta gamla þorpsins á eyjunni Flatey í miðjum Breiðafirði. Húsin eru byggð í hefðbundnum stíl fyrri alda, uppgerð af virðingu fyrir sögu og sérstöðu staðarins. Gistirýmin eru í fyrrum pakkhúsum við gamla torgið og úr borðstofunni er útsýni yfir Skansmýri, þar sem krían verpir ár hvert. Á Flatey er einhver ólýsanlegur kraftur en á sama tíma einstök kyrrð sem borgarbörn eins og undirritaður hefur virkilega gott af til að jarðtengjast kem að því síðar. Á eyjunni eru sumarhús, og mikið líf er þarna á sumrinn.
Veitingastaður í sögulegu Samkomuhúsi
Veitingastaðurinn er í Samkomuhúsinu sem var reist árið 1890. Það var endurbyggt og opnað að nýju árið 2007, með Minjavernd sem ábyrgðaraðila. Þar geta gestir notið matar í einstöku andrúmslofti sem einkennir eyjuna. Matreiðslumenn staðarins leggja mikinn metnað í að baka allar kökur á staðnum, sem og nota ferskt hráefni. Má þar helst nefna hörpuskel úr Breiðarfirði, sem og jurtir og rabbabara sem er tínt á eyjunni. Rabbabara mojito inn er líka frægur.
Heitt Rabarbara compot með crumble og ís, gerður úr rabbabara frá Flatey
Hörpuskel úr Breiðarfirði með grilluðu Radiccio Kimchi og soya engifer dressingu.
Sumarhátíð sem hefur slegið í gegn
Hátíðin hefur fest sig í sessi hjá heimafólki og gestum. Í sumar, frá 5. júní til 16. ágúst, býður Hótel Flatey upp á metnaðarfulla dagskrá með vinsælustu tónlistarfólki landsins. Aðgangur er ókeypis.
Mikilvægt að bóka tímanlega
Hótel Flatey er vinsælt meðal þeirra sem eiga sumarhús á eyjunni og annarra gesta. Því er nauðsynlegt að bóka gistingu og ferjusiglingu með góðum fyrirvara. Starfsmenn hótelsins taka á móti gestum við höfnina, sjá um farangurinn og flytja fólk að hótelinu eftir óskum.
Í Flatey, ferðu aftur í tíman, og hleður sálina í þessari náttúruparadís
Einstök stemmning myndast á kvöldin