Siðareglur Týndu Strákana

1. Hlutverk og tilgangur

Týndu Strákarnir er hlaðvarp í tengslum við Strax í dag, framleitt af Samson.is. Í þáttunum tökum við viðtöl og ræðum kerfið, veggina og afleiðingarnar með fólki sem hefur upplifað þetta sjálft, aðstandendum og fagfólki. Markmiðið er samtal og breytingar. Við leitum skýringa og lausna, ekki rifrildis, og forðumst persónulegar árásir.

2. Ritstjórnarleg ábyrgð og hlutverk

Ábyrgðarmaður og ritstjóri er Steindór Þórarinsson og ber endanlega ábyrgð á birtingu efnis.

Nonni Lobo er þáttastjórnandi og vinnur með viðmælendum og efnisöflun.

Ásgeir Páll sér um upptökur og hljóðvinnslu.

3. Hvar reglurnar gilda

Siðareglurnar gilda um alla framleiðslu og birtingu þáttarins og eru birtar á vefnum: www.samson.is/tyndu-strakarnir

4. Skýr merking á frásögnum, staðfestu og óvissu

Við gerum skýran greinarmun á þrennu:

Gestur segir
Frásögn eða reynsla viðmælanda, sett fram sem sjónarhorn viðmælanda.

Staðfest með heimildum
Atriði sem við getum stutt með opinberum gögnum, skjölum, rannsóknarniðurstöðum eða öðrum traustum heimildum.

Óstaðfest eða óljóst
Atriði sem ekki hefur tekist að staðfesta, eða þar sem upplýsingar eru ósamræmanlegar eða ófullnægjandi. Slíkt er merkt sem óstaðfest eða óljóst.

Við leggjum engin orð í munn annarra. Tilvitnanir eru aðeins notaðar þegar þær eru rekjanlegar.

5. Meðferð ásakana og alvarlegra fullyrðinga

Viðmælendur tala út frá eigin reynslu og sjónarmiðum. Fullyrðingar og ásakanir eru á ábyrgð viðmælenda og endurspegla ekki endilega afstöðu þáttastjórnenda eða framleiðanda. Ef alvarlegar ásakanir eða afdráttarlausar fullyrðingar koma fram metum við birtingu þeirra með varfærni.

6. Andsvar og sanngirni

Ef viðmælendur setja fram ásakanir sem beinast að nafngreindum aðilum eða skýrt afmörkuðum hlutverkum tökum við saman atriðin eftir viðtal, sendum þau skriflega og bjóðum andsvör.

Andsvör birtast í næsta þætti á eftir þegar það er raunhæft, eða með öðrum skýrum hætti. Við bjóðum einnig viðkomandi að koma í þáttinn, eða senda stutta yfirlýsingu.

7. Leiðréttingar

Við leiðréttum villur sem uppgötvast og gerum það sýnilegt. Leiðréttingar og athugasemdir má senda á netfangið hér að neðan.

8. Samþykki, viðkvæm mál og persónuvernd

Við ræðum ekki viðkvæm mál án samþykkis. Við sýnum sérstaka varfærni þegar um er að ræða börn, aðstandendur og fólk í viðkvæmri stöðu. Við forðumst óþarfa persónugreinanlegar upplýsingar og birtum ekki atriði sem geta valdið óþarfa skaða án þess að ríkar ástæður og traustur grundvöllur liggi fyrir.

9. Nöfn, embætti og tilvísanir

Við getum nefnt embætti og vitnað í opinberar yfirlýsingar, ákvörðunartöku og loforð sem eru skrásett eða birt opinberlega. Gagnrýni beinist að kerfum, ferlum, ákvörðunum og ábyrgð. Persónuleg atlaga á einstaklinga er ekki markmið þáttarins.

10. Styrkir, framlög og ritstjórnarlegt sjálfstæði

Við tökum við styrkjum frá einstaklingum og fyrirtækjum. Styrktaraðilar hafa ekki áhrif á efni þáttarins og bera ekki ábyrgð á því sem fram kemur. Ef styrkt efni eða kynning er birt verður það merkt skýrt.

11. Lögfræðileg varfærni

Þegar efni er sérstaklega viðkvæmt eða áhættusamt leitum við lögfræðiráðgjafar.

12. Hafa samband

Ábendingar, athugasemdir, leiðréttingar og andsvör berist á: tyndustrakarnir@samson.is

Hægt er að senda ábendingar nafnlaust, þá einfaldlega með því að gefa ekki upp nafn eða persónugreinanlegar upplýsingar í samskiptunum.

TIL BAKA

Þættirnir

Auka efni og ýmis gögn

Siðareglur þáttarins

Senda ábendingu

Styrkja þáttinn