FRÉTTA TILKYNNING!

Hlaðvarp í tengslum við Strax í dag, framleitt af Samson.is. Um kerfið, veggina og afleiðingarnar, sett fram með skýrum dæmum, samhengi og ábyrgð.


Týndu Strákarnir er hlaðvarp sem fjallar um kerfið, veggina og afleiðingarnar. Við ræðum við fólk sem hefur lent í kerfinu, aðstandendur og fagfólk sem vinnur innan þess og rekst á hindranir. Þegar færi gefst ræðum við líka við fólk í ábyrgðarstöðum. Markmiðið er ekki að bæta í hávaðann heldur að færa umræðuna úr sögusögnum yfir í skýr dæmi, samhengi og ábyrgð og benda á það sem þarf að laga þegar grunnur er til.

Hverjir standa að þessu

Þátturinn er haldinn úti af Steindóri Þórarinssyni og Jóni K. Jacobssyni sem einnig er kallaður Nonni Lobo. Verkefnið er unnið í tengslum við Strax í dag og Samson.is framleiðir efnið og hýsir þetta heimasvæði þáttarins. Upptökur og tæknileg framleiðsla eru unnar með Ásgeiri Páli, útvarpsmanni á K100 og rekur hann studioið Raddirnar til að tryggja vandaðan frágang og fagmennsku í vinnslu og birtingu.

Hvernig við vinnum

Við greinum skýrt á milli þess sem gestir segja, þess sem er staðfest með heimildum og þess sem er enn óljóst. Þegar við getum ekki staðfest atriði segjum við það. Þegar við vitum ekki segjum við það.

Kynning og myndefni

Við birtum klippur úr hverjum þætti til að kynna efnið. Í öðru kynningarefni notum við ekki myndir af okkur. Við viljum að fókusinn sé á málefninu, ekki á andlit.

Aðgengi og stuðningur

Allir þættir verða opnir og aðgengilegir öllum. Við greiðum verkefnið úr eigin vasa, bæði beinan kostnað og tímann sem fer í rannsóknir, upptökur, framleiðslu og þegar þarf lögfræðiráðgjöf. Hægt verður að styrkja þáttinn með kaupum á varningi frá íslensku listafólki og með viðburðum sem við munum halda.

Um okkur

Um okkur og sögu okkar kemur síðar, þegar við gerum sér þætti um okkar leið inn í þetta, hvers vegna við erum að þessu og hvað liggur á bak við verkefnið.

Hvar og hvenær

Fyrsti þáttur kemur út fimmtudaginn 19. mars 2026. Þættirnir birtast hér á www.samson.is/tyndustrakarnir, á Samson.is og á helstu hlaðvarps og streymisveitum.

Hafa samband og ábendingar

Netfang þáttarins tyndustrakarnir@samson.is opnar sama dag og fyrsti þáttur fer í loftið. Ef þú vilt senda ábendingu nafnlaust geturðu gert það á síðuni eftrir að þáttur #1 fer í loftið

Við ætlum ekki að láta gaslýsa okkur út úr raunveruleikanum.

Við munum halda okkur við staðreyndir, kannað mál til botns og fylgja eftir loforðum þar til annaðhvort koma svör eða það verður augljóst hver ber ábyrgð á þögninni.

Við stefnum að því að skrá hlaðvarpið sem fjölmiðil og leggja vinnuna fram af þeirri festu sem málið krefst.

Hér birtist fyrsti þáttur fimmtudaginn 19. mars 2026.
Þangað til er hér stikla úr myndinni The Lost Boys.

The Lost Boys er bandarísk kvikmynd frá 1987, leikstýrð af Joel Schumacher, um tvo bræður sem flytja til sjávarbæjarins Santa Carla og uppgötva að þar er vampírufaraldur í gangi.

Við tókum nafnið af ástæðu. Við vorum týndir strákar sem rötuðu til baka. En þegar maður er ekki á réttum stað í lífinu getur maður orðið vampíra á samfélagið og á fólkið næst sér. Þessi þáttur er til að minna á fókusinn, málefnið er aðalatriðið, ekki við.

Við erum rétt að byrja!

Þættirnir

Auka efni og ýmis gögn

Senda ábendingu

Styrkja þáttinn