Týndu Strákarnir er hlaðvarp í tengslum við Strax í dag, framleitt af Samson.is. Við setjum málin á borðið, tökum þau í gegn og fylgjum þeim eftir. Hér er greint á milli frásagnar og staðreynda og fókusinn er á það sem skiptir máli: hvað gerðist, af hverju og hvað þarf að breytast.

Við tölum hreina íslensku.

Týndu Strákarnir: Hlaðvarp um kerfið, veggina og afleiðingarnar

Í fyrsta þætti ræða Steindór Þórarinsson, einnig þekktur sem ADHD pabbi, og Jón K. Jacobsson aka Nonni Lobo, um hvað liggur að baki Týndu Strákunum, hvers vegna þeir fóru af stað með þetta verkefni og hvað þeir ætla sér að gera, bæði í hlaðvarpinu, á gólfinu og á bak við tjöldin.

Þeir fara yfir áherslur verkefnisins, hvers vegna þeir leggja svona mikla áherslu á skýr dæmi, samhengi og ábyrgð og hvernig þeir hyggjast fylgja málum eftir.

Upptökur og tæknileg framleiðsla eru unnar með Ásgeiri Páli, útvarpsmanni á K100, og þátturinn er tekinn upp í stúdíóinu Raddir.

Þátturinn er nú aðgengilegur á Spotify og mun á næstu dögum birtast á helstu streymisveitum.

Brynjar Karl Sigurðsson, stofnandi Aþenu körfuboltafélagsins, er gestur í þætti #6 af Týndu Strákunum.

Í þættinum ræðum við Aþenu, baráttu Brynjars og það sem gerist þegar fólk reynir að byggja upp starf fyrir börn og ungmenni en mætir kerfi sem virðist of oft verja sjálft sig betur en þau sem það á að þjóna. Við ræðum gaslýsingu, stjórnsýslu, þöggun og það hvernig mikilvægt starf getur lent í veggjum sem erfitt er að útskýra með almennri skynsemi.

Við þáttastjórnendur fórum á æfingu hjá Aþenu og ræddum þar við móður einnar stúlku. Hún lýsti starfinu sem einstöku og sagði það í raun hafa bjargað dóttur sinni. Það samtal situr eftir og setur umræðuna í skýrt samhengi. Hér er ekki verið að tala um hugmynd á blaði. Hér er verið að tala um börn, traust, öryggi og starf sem skiptir raunverulegu máli. Brynjar segir meðal annars frá sláandi atviki þar sem matur sem félagið ætlaði að gefa stelpum hafi verið skemmdur. Hann lýsir líka hvernig rými sem gæti nýst til að skapa samfélag, styrk og skjól fyrir ungar stelpur standi tómt í stað þess að vera nýtt. Við ræðum einnig okkar eigin samskipti við stjórnvöld og stofnanir. Það vekur spurningar þegar mál sem varða börn, úrræði, ábyrgð og kerfisbresti mæta þögn eða undanbrögðum.

Hvorki heilbrigðisráðherra né mennta og barnamálaráðherra hafa svarað boði okkar um að koma í þáttinn. Barna og fjölskyldustofa hafnaði einnig þátttöku og vísaði til þess að stofnunin geti ekki tjáð sig um einstök mál eða málefni skjólstæðinga. Við skiljum að stofnunin sé bundin trúnaði í einstökum málum. En þegar alvarlegar frásagnir, gögn og endurtekin mynstur birtast aftur og aftur, þá er ekki nóg að vísa allri umræðu frá sér. Kerfið þarf að geta rætt ábyrgð, verklag og almennar brotalamir án þess að fela sig á bak við þagnarskyldu.

Þessi þáttur er um íþróttir, börn, vald, kerfi og fólk sem syndir á móti straumnum þegar straumurinn liggur í ranga átt. Þátturinn er jafnframt fyrsti þáttur Týndu Strákanna sem kemur út í mynd og verður aðgengilegur á YouTube og Spotify. Týndu Strákarnir eru framleiddir af Samson.is í samstarfi við Raddir hlaðvarpsupptökuver.

Þáttur #5 | Kristján Halldór Jensson | Frá kerfinu í fangelsið og til baka

Í þættinum ræðum við Kristján Halldór Jensson sem flakkaði ungur á milli kerfa, fór snemma í neyslu og endaði síðar í fangelsiskerfinu.

Við ræðum leiðina þangað, botninn, viðsnúninginn og hvernig hann fann loks leið til að róa taugakerfið og horfast í augu við sjálfan sig. Einnig förum við inn í það hvernig Nonni tók á móti honum þegar hann var hvað lengst niðri.

Í dag helgar Kristján líf sitt því að hjálpa öðrum mönnum að snúa við blaðinu og vinnur meðal annars með Tolla að því að ná til þeirra sem eru enn fastir í sama vítahring.

Týndu Strákarnir er hlaðvarp um kerfið, veggina og afleiðingarnar.

Bak við þættina fer líka fram vinna utan stúdíós. Við hittum aðstandendur, fagfólk og ráðafólk og reynum að knýja fram raunverulegar breytingar.

Hugleiðingar Okkar

Þættirnir

Auka efni og ýmis gögn

Senda ábendingu

Styrkja þáttinn

Sagan á bakvið Nafnið

The Lost Boys er bandarísk kvikmynd frá 1987, leikstýrð af Joel Schumacher, um tvo bræður sem flytja til sjávarbæjarins Santa Carla og uppgötva að þar er vampírufaraldur í gangi.

Við tókum nafnið af ástæðu. Við vorum týndir strákar sem rötuðu til baka. En þegar maður er ekki á réttum stað í lífinu getur maður orðið vampíra á samfélagið og á fólkið næst sér. Þessi þáttur er til að minna á fókusinn, málefnið er aðalatriðið, ekki við.

Við erum rétt að byrja!