Eyþór Ingi & Savanna Woods ásamt hljómsveit á Græna hattinum 26. Apríl

Eyþór Ingi og Savanna Woods leiða saman hesta sína á Græna hattinum þann 26. apríl ásamt færustu hljóðfæraleikurum Íslands.  

Savanna er bæði söngkona og lagahöfundur frá Seattle. Hún er bæði þekkt fyrir sínar eigin lagasmíðar og ásamt rokksveitinni Eden. Savanna vakti fyrst athygli þegar hún keppti í Amerísku þáttaröðinni Voice en þar var hún í Kelly Clarkson liðinu. Þar vakti hún athygli fyrir kraftmikinn “höskí ” rokkaðann og sjarmerandi tón. Í þáttaröðinni flutti hún lög eins Zombie með The Cranberries og Seattle slagarann Black Hole sun (Soundgarden) og gerði það afburða vel. Ég sá hana fyrst þar, og hef fylgst með henni, og þótti gaman að sjá að Eyþór hafi kynnst henni og sé að koma með hana til Íslands!

Eyþór ættu heimamenn að þekkja en hann hefur oft vakið athygli fyrir kraftmikinn söng og léttann húmor. Á þessum tónleikum koma þau fram ásamt dúndur hljómsveit og ætla að taka fyrir kraftmikla gæsahúðaslagara í bland við eigin lög. En þau slógu heldur betur í gegn í Bæjarbíó sumardaginn fyrsta. Þetta er show sem þú vilt EKKI MISSA AF

Trommur: Benni Brynleifs 

Bassi: Ingi Björn Ingasson 

Gítar og söngur: Eyþór Ingi, Savanna Woods og Óskar Logi (Vintage Caravan)

En hver er Savanna Wood? - Nánar um hana hér

TRYGGÐU ÞÉR MIÐA TÍMANLEGA HÉR

Savanna Woods “Blind Audition” Í The Voice
Zombie by The Cranberries

Previous
Previous

Einar Vilberg og Paunkholm halda Nirvana lifandi. Grunge-hjartað slær enn

Next
Next

The Prodigy komu fram á Coachella 2025, heidruðu Keith Flint – og minntu á að þetta er ekki búið.