Bríet gefur út einlægt og persónulegt myndband við nýja smáskífu sína Blood On My Lips

Bríet tók næsta skref í sínum alþjóðlega ferli og gaf út nýja ensku smáskífu Blood On My Lips í Maí. Og ef þú héltst að hún myndi stoppa þar þá hefurðu rangt fyrir þér.

Myndbandið við lagið er skemmtilaga klippt úr hennar persónulegu myndböndum sem hún hefur tekið gegnum tíðina frà árinu 2005 til dagsins i dag, ekkert crew, bara listakonan og lífið.

Myndbandið er persónulegt, stundum óskýrt, en einlægt og sýnir klippur úr hennar lifi, endar það t.d. á klippum frá því hún var yngri og hefur ekki hugmynd um hversu áhrifarík og vinsæl hún yrði í framtíðini eða hvað? Var þetta planið allan tíman og þarna vissi hún nákvæmlega hvert hún ætlaði? Inní koma svo nokkur skot frá m.a. menningarnótt og tónleikum hennar í Hörpu. Það sem mér finnst skemmtilegt við þessa nálgun Bríetar er að þarna sér maður að hún er bara manneskja eins og við hin, sem stundum fer á stóru sviðin. List þarf nefninlega ekki alltaf að kosta mikið, og oftast eru það þessi tjáning sem hittir í mark. Fólk er orðið þreytt á tilgerð og ofur markaðssetu efni. Það er Hörður Freyr Brynjarsson sem klippir þetta saman, og gerir það vel.

En Lagið sjálft? Það er ekki bara enn eitt ástarsorgarlagið. Þetta er flókið og eyðileggjandi ást, sú sem þú lærir af, en hún fer aldrei. Bríet lýsir því sem „lag sem ber mikla þyngd“ og það er rétt hjá henni.

En þrátt fyrir að þetta sé í fyrsta skipti sem Bríet gefur út tónlist á ensku (þó ætla ég að minnast á In Too Deep frá byrjun ferilsins), þá er þetta ekki hennar fyrsta tilraun til að brjótast út úr staðlaðri tónlistarsenu. Hún vill meira og við erum til í það.

Blood On My Lips var skrifað í samstarfi við Arnar Inga Ingason og Þórir Már Davíðsson, sem einnig framleiddu lagið undir nöfnunum Young Nazareth og Mistersir. Þetta er lag sem kemur með fallega við tilfingnar þess sem virkilega hlustar á textan og fullt af hljóðum sem munu hrífa alla. Það verður spennandi að sjá hver framtíðin verður hjá þessari einstöku listakonu.


Efni sem þér gæti líka við

Next
Next

Rewind: Cil – Loser (2025)