Krummi sendir frá sér „Smile Till It Ends“, nýtt myndband og væntanleg plata á haustmánuðum
Brynjar Snær
Nýtt lag og kvikmyndalegt tónlistarmyndband eru komin út. Og í vor mætir Mínus í Tónlistarmennina okkar, í fyrsta sinn sem heil hljómsveit er tekin í viðtal í seríunni.
Krummi Björgvinsson er búinn að senda frá sér nýja smáskífu, „Smile Till It Ends“, forsmekk að væntanlegri plötu sem á að koma út haustið 2026. Í viðtali við American Songwriter segir hann að lagið hafi byrjað að mótast stuttu eftir að faraldurinn skall á 2020, og að það tali enn beint inn í samtímann.
Lag sem varð til úr óvissu
Krummi lýsir því að hann hafi á þessum tíma verið að hugsa um seiglu, sjónarhorn og þennan hljóða styrk sem þarf þegar heimurinn virðist óstöðugur. Hann tengir það líka við ákvörðunina að gefa lagið út núna, og segir orðrétt: „It feels especially fitting to release the song now, as the world continues to face significant challenges and uncertainty.“
Hljóðheimurinn er sagður hlýrri en margir tengja við Krumma úr fyrri verkefnum, með Americana og alt country áferð.
Kuldinn, ljósin og andardrátturinn
Tónlistarmyndbandið er tekið upp með skýrri tvíhyggju í huga. Annars vegar kaldur, iðnaðarlegur útivettvangur rétt utan borgarinnar, hins vegar hlýrra stúdíórými sem er fléttað inn til að spegla viðkvæmni og styrk, einsemd og von.
Í viðtalinu kemur fram að Sigurgeir hafi leikstýrt og að Þórhildur Kristín hafi séð um tökur. Krummi lýsir líka hugmyndinni um að syngja úti í vetrarkulda, lýstur einungis af bílaljósum, með sýnilegan andardrátt í loftinu.
Mínus mætir í Tónlistarmennina okkar
Ljósmynd: Snorri Sturluson
Á sama tíma er líka að gerast annað sem margir bíða eftir. Samkvæmt Vísi verður fjórða sería Tónlistarmannanna okkar frumsýnd á Sýn+ 12. apríl. Auðunn Blöndal ræðir þar við fimm tónlistarmenn og meðlimi Mínusar, og segir sérstaklega að þetta sé í fyrsta sinn sem heil hljómsveit er í viðtali í seríunni.
Í sömu umfjöllun kemur fram að fyrsta sería hafi komið út 2020, notið mikilla vinsælda og hlotið Edduverðlaun sem menningarþáttur þess árs.
Fyrir þá sem vilja lesa meira
Við mælum með viðtalinu hjá American Songwriter. Það er létt, skýrt og fer beint í það sem lagið er að reyna að gera, án þess að drepa stemninguna með orðaflóði. Lesa viðtal hér
Samson hefur þegar hlustað oftar en einu sinni í dag. Við óskum Krumma til hamingju með útgáfuna og bíðum spennt eftir plötunni í haust. Við erum aðdáendur, jafnvel smá fanbois, af Krumma, Mínus og Legend.
Þau sem komu að gerð tónlistarmyndbandsins
Framleiðsla: 7074
Leikstjóri: Sigurgeir Þórðarsson
Tökustjóri: Þórhildur K. Lárentsínusdóttir, Tóta
Klipping og grafík: Sigurgeir Þórðarsson og Þórhildur K. Lárentsínusdóttir
Gaffer: Siggi Bahama
Grip: Úlfar Jacobsen
AC: Kári Ísleifur
Aðstoðarfólk: Haraldur Hrafn Thorlacius, Emil Andri Sigurgeirsson og Anton Karl
Búningar: Saga Garðarsdóttir og Krummi
Drone: Svanur Gabriele
Hugmynd: Krummi
Þakkir: Sýrland, Bjarni M Sigurðarson og Alda Music