Tónlistarkona mánaðarins: Katrín Myrra sendir frá sér nýtt lag sem heitir “Tilbaka” og heldur áfram að fara sínar eigin leiðir.

Tilbaka er íslenskt popplag með beinum línum og skýrri tilfinningu. Það snýst um að losa sig frá því sem er orðið úrelt hvort sem það er samband, vinna, vinátta eða hugarfar sem hefur setið of lengi.

Katrín og Dagbjartur eða Daybright byrjuðu á öðru lagi, en fundu ekki taktinn. Þeirra leið var einföld: henda öllu út og byrja upp á nýtt. Úr varð lag sem stendur sjálfstætt og talar beint til fólks án filters.

„Ég tengi þetta lag við það að koma sér frá einhverju sem er ekki að þjóna manni lengur... en í rauninni langar mig bara að hlustendur túlki lagið á sinn hátt,“ segir Katrín Myrra. Það er líka það sem gerir þetta lag gott – það þarf ekki að útskýra neitt. Það bara virkar.

Sjáðu líka af hverju við völdum Katrínu Myrru
sem fyrstu tónlistarkonu mánaðarins á samson.is,
Smelltu hér og lestu viðtalið meðan þú hlustar á lagið

Next
Next

Katrín Myrra er fyrsta tónlistarkona mánaðarins, poppkraftur sem biður engan um leyfi