Katrín Myrra er fyrsta tónlistarkona mánaðarins, poppkraftur sem biður engan um leyfi

Við á Samson.is hefjum nýja röð þar sem við kynnum ferskar, áhugaverðar og efnilegar íslenskar söngkonur. Katrín Myrra ríður á vaðið með nýjum smellum, skapandi samstarfi og portúgalskri innspýtingu.

Meðan aðrir fylgjast með fótbolta, pólitík eða slúðri, þá fylgist ég vel með ungu og efnilegu tónlistarfólki, það er ótrúlega gaman að sjá raunverulega hæfileikaríkt fólk elta drauma sína. Katrín Myrra er ein af þeim sem ég hef fylgst lengi með og ef þú hefur ekki heyrt nafnið Katrín Myrra á undanförnum mánuðum hefurðu verið í ansi góðu feluleik. Með lög eins og „Snerti Þig“, „Aftur Og Aftur“ og nýjasta slagaranum „VBMM?“ hefur Katrín fest sig í sessi sem ein mest spennandi röddin á íslensku poppsviði í dag. Samson.is kynnti hana sem tónlistarkonu mánaðarins fyrir maí og fór með henni yfir árangurinn, áhrifin og komandi tíma.

„VBMM?“ – Þegar nostalgían hittir beint í hjartað

„VBMM?“ frá Katrínu Myrru & Klöru Einars skutlaði okkur aftur í MSN-tímana – þegar það að byrja saman fólst helst í að senda broskalla og biðja besta vininn um að kanna stemninguna. Svona nostalgía er einmitt það sem passar fullkomlega við hjartað í Samson: skemmtilegt, létt og með rétta snertingu af gömlu góðu dögunum.

Lagið „VBMM?“, sem Katrín gerði í samstarfi við Klöru Einarsdóttur, hefur vakið mikla athygli og var gripið á lofti sem óvæntur slagari ársins. Aðspurð um samstarfið segir Katrín það hafa komið náttúrulega til: „Við Klara náum rosalega vel saman skapandi, og hugmyndin að gera lag sem færir okkur aftur í áhyggjulausari tíma MSN-ára var bara ómótstæðileg.“ Lagið hefur slegið í gegn meðal annars á TikTok og samfélagsmiðlum, enda auðvelt að tengja við nostalgískan en ferskan stílinn.

Portúgal tónlist, tígrisdýr og tími fyrir sjálfa sig

@katrinmyrra

Portugal Workaway DIML💗

♬ original sound - Katrin Myrra

Katrín eyddi nýlega tæpum mánuði í Portúgal, þar sem hún tók þátt í sjálfboðaverkefni að hjálpa húsdýrum sem koma frá slæmum aðstæðum og villtum húsdýrum og vann að tónlist í rólegra umhverfi. „Þetta var tími til að endurstilla aðeins og finna nýjan innblástur,“ segir Katrín. Ég kom til baka með fullt af nýjum hugmyndum og lagasmíðum sem ég hlakka til að sýna fólki.“ Í næstu viku förum við betur yfir ferðalögin sem Katrín Myrra hefur farið í sem hafa opnað huga hennar.

Valin fyrst tónlistarkona mánaðarins

Við á Samson ætlum að setja kastljósið á unga, skapandi söngkvennabylgju sem fær allt of lítið pláss í íslenskum tónlistarmiðlum. Það er eiginlega ótrúlegt, enda hefur aldrei áður verið jafn mikil gróska af hæfileikaríkum tónlistarkonum hérlendis.

Við hefjum leikinn með SAM-komu á tónleikastaðnum BIRD, þar sem okkar fyrsta tónlistarkona mánaðarins, Katrín Myrra, verður í aðalhlutverki – meira um það síðar!

Framundan meira popp, meiri leikgleði

Katrín Myrra hefur enga áætlun um að hægja á sér. „Það sem ég elska við tónlist er frelsið til að skapa og tengjast fólki í gegnum hana. Næstu mánuðir eru fullir af nýjum útgáfum og spennandi samstarfi,“ segir hún og bætir við glottandi: „Ég ætla bara að halda áfram að gera það sem mér finnst skemmtilegast og vona að fólk tengi við það áfram.“


Katrín Myrra er poppstjarna sem tekur enga krókaleið. Með sjálfstraust, húmor og einlægni stefnir hún áfram upp á við – og ætlar ekki að biðja neinn um leyfi til þess.

Við mælum sérstaklega með að fylgjast með Katrínu Myrru á samfélagsmiðlum. Hún hefur einstaklega skemmtilega nærveru, húmor og léttleika sem gerir hana að einni allra skemmtilegustu íslensku tónlistarkonunni í dag. Hún er bæði óhrædd við að vera einlæg og fyndin, hvort sem hún er að taka lag heima í stofu, deila skemmtilegum uppákomum eða sýna hvernig raunveruleikinn bak við tónlistina lítur út. Þ

að er þess virði að fylgjast með henni og leyfa henni að gleðja daginn ykkar örlítið meira.

TikTok: tiktok.com/@katrinmyrra
Instagram: instagram.com/katrinmyrra
Facebook: facebook.com/katrinmyrra
YouTube: youtube.com/@katrinmyrra

🎧 Spotify: Katrín Myrra á Spotify

Previous
Previous

Tónlistarkona mánaðarins: Katrín Myrra sendir frá sér nýtt lag sem heitir “Tilbaka” og heldur áfram að fara sínar eigin leiðir.