Guðmundur Jónsson: Frá Sálinni í blúsinn með Trouble In Mind

Eftir áratuga feril í fremstu röð íslenskrar popp- og rokktónlistar snýr Guðmundur sér nú að blúsrokkinu með dúettinum GG Blús.

Mynd: Facebook síða GGBlús

Platan Trouble In Mind er nýkomin út og er önnur plata GG Blús, en sú fyrsta, Punch, kom út árið 2019. „Trouble In Mind er hálfgerð systurplata fyrstu plötunnar okkar og okkur fannst alltaf frá byrjun að við ættum að minnsta kosti tvær plötur í sarpinum," segir Guðmundur. „Ég er þannig að alltaf þegar ég er spenntur fyrir einhverju í tónlist, þá vil ég ólmur fara að skapa eitthvað í kringum það og það er engin undantekning í þessu tilfelli.“

Hrátt og einfalt – tvímenningarnir í GG Blús

GG Blús samanstendur af Guðmundi Jónssyni á gítar og Guðmundi Gunnlaugssyni, eða „Múraranum," á trommum. Þeir syngja báðir og leggja mikla vinnu í útsetningar. „Mikill tími fer í að útsetja en í því felst líka áskorunin og ánægjan, að láta lögin virka eins vel og hægt er með svona lítið í höndunum bara gítar, trommur og söng.“

Að sögn Guðmundar gengur samstarfið ótrúlega vel, þeir æfa reglulega og eru „að sækja í sama brunn.“ Þeir leggja mikla áherslu á frumkraftinn og einfaldleikann: „Við nennum ekki að bíða endalaust þetta snýst um að grípa andartakið og leyfa hráu tjáningunni að ráða ferðinni.“

Áhrifavaldið: bílskúrinn

Samstarfið kviknaði þegar Guðmundur flutti á Álftanes og endurnýjaði þar kynnin við nafna sinn sem bjó þar fyrir. "Við byrjuðum að spila blús úti í skúr en enginn vildi vera með okkur, svo við ákváðum að vera dúett í anda Royal Blood, White Stripes og Black Keys."

Þeirra leið var einföld: spila hátt og vel. Guðmundur fann út hvernig hann gæti spilað bassa og gítar samtímis og mótaði þannig sérstakan hljóm GG Blús. "Það er ákveðin frelsistilfinning sem fylgir því að þurfa ekki að semja við stóran hóp heldur bara tvo menn að gera það sem þeim finnst virkilega gaman."

Gestir sem setja svip

Mynd: Facebook síða GGBlús

Með þeim á plötunni eru þrjár öflugar tónlistarkonur: Unnur Birna Björnsdóttir á fiðlu og bakraddir, Brynhildur Oddsdóttir á gítar og bakraddir, og Bryndís Ásmundsdóttir í söng. „Þetta eru frábærar konur sem lyfta plötunni á næsta stig," segir Guðmundur og bætir við að lög eins og "Make It Right" hafi fengið góðar undirtektir strax við útgáfu.

Sálin og lexían sem lifir

Guðmundur Jónsson var stofnfélagi, aðallagasmiður og gítarleikari Sálarinnar hans Jóns míns frá stofnun hennar 1988 til loka 2018. "Ég verð alltaf kenndur við það fróma band og það er í góðu lagi. Það var virkilega skapandi og gefandi tími."

Hann segir lexíuna úr ferlinum alltaf vera þá sömu: „Að fylgja eigin sannfæringu, hlusta á hjartað og þá kemur restin í kjölfarið."

Frá einokun til yfirflæðis

„Ég fór fyrst í hljóðver árið 1982 og þá réðu plötuútgáfur miklu. Þeir áttu upptökurétt og gátu selt vinyl og geisladiska – þetta var dýrt ferli og lokað kerfi,“ segir hann. "Í dag getur hver sem er tekið upp tónlist og dreift á netinu – en fyrir vikið er líka allt orðið of mikið." Streymisveitur hafa breytt leiknum, segir hann, en ekki endilega til góðs. „Tónlistin hefur verið gjaldfelld. Það er ekki sama virðing fyrir verkinu – allt er frítt og tæknifyrirtækin skafa rjómann af kökunni."

Hann bendir líka á að gervigreindin sé næsta stórhættulega þróunin. „Það verður erfitt að greina á milli sköpunar og samsettrar eftirhermu. En það er eitt sem hún nær ekki – tónleikunum.“

Mynd: Facebook síða GGBlús

Eldmóður á ellefu

Guðmundur segir að þrátt fyrir tímans tönn hafi ástin á tónlistinni ekkert minnkað. "Að rokka á gítar, setja magnarann í ellefu og finna vindinn í bakið þegar maður slær djúpa E-strenginn – það er ennþá töff og það hverfur aldrei."

„Það er þessi frumkraftur og gleðin sem heldur manni gangandi. Maður eltir listagyðjuna – og dæmir sig sjálfur til fátæktar í leiðinni. En það kemur margt í staðinn: stemningin, stundin, og vonin um að semja hið fullkomna lag."

Vel heppnuð útgáfuhátíð

Útgáfutónleikarnir fyrir Trouble In Mind fóru fram á tónleikastaðnum Bird í Reykjavík þann 10. maí síðastliðinn og nutu góðrar aðsóknar. Aðdáendur fengu þar að upplifa nýja hlið á Guðmundi þar sem hrátt rokk og blússveifla réðu ríkjum. Næst leggja þeir land undir fót og boða fagnaðarerindið á Vestfjörðum næstu helgi, spila lög af nýjustu breiðskífu sinni „Trouble In Mind“ ásamt völdum gullmolum úr lagakistunni.

Húsið, Ísafjörður - Fimmtudagskvöldið, 22. maí - kl. 21:00

Vegamót, Bíldudalur - Föstudagskvöldið, 23. maí - kl. 21:00

Grillhúsið, Borgarnes - Laugardagskvöldið, 24. maí - kl. 21:00

GG blús Trouble In Mind: Sögurnar á bak við lögin


Upptaka sem fangar anda GG Blús

Í maí 2023 héldu GG Blús tónleika á Dillon – rokkbúllunni sem þeir nafnar hafa gert að sínum heimavelli síðustu ár. Upptakan frá þeim tónleikum var birt á samfélagsmiðlum í febrúar 2024 og sýnir dúettinn á heimavelli, þar sem bæði sígrænar ábreiður og frumsamið efni fá að njóta sín í hráum og einlægum flutningi. „Okkur til mikillar ánægju (og vonandi öðrum líka),“ skrifaði Guðmundur og fáir myndu andmæla því eftir að hafa séð þá spila.

Soundcloud: soundcloud.com/ggblus
Instagram:
instagram.com/ggblus
Facebook:
facebook.com/GGblus/
YouTube:
youtube.com/@ggblus3257

🎧 Spotify: GG Blús

Previous
Previous

Chris Haux: Að vera rokkari, ekki bara tónlistarmaður

Next
Next

Snoop Dogg spyr: Er það glæpur?