Þáttur #3 Þáttur Rósa Ólöf Ólafíudótir - Systir Lalla Johns um kerfið, skýrslurnar og skaðann

Í þriðja þætti Týndu Strákanna ræðum við við Rósu Ólöfu Ólafíudóttur, systur Lalla Johns, um bókina sem hún hefur skrifað um bróður sinn, tengsl þeirra systkina og sögu sem varpar hörðu ljósi á kerfi sem brást ekki aðeins honum heldur líka aðstandendum hans.

Í þættinum förum við yfir sláandi gögn og skýrslur um Lalla John, þar sem orðalag, mat og framsetning bera með sér fordóma, gaslýsingu og valdbeitingu sem skildu eftir djúp sár. Rósa lýsir því hvernig það var að fá þessi gögn í hendurnar og hvað þau segja í raun um kerfi sem afgreiddi fólk í stað þess að styðja það.

Við ræðum líka viðbrögðin þegar umræðan um Breiðavík fór af stað, reynslu Rósu úr skólakerfinu og þá erfiðu niðurstöðu að mynstur fortíðarinnar séu enn sýnileg í dag. Þátturinn snýst um meira en eina fjölskyldu. Hann snýst um hvernig kerfið bregst börnum, ungmennum og aðstandendum þeirra og hvað gerist þegar fordómar fá að stýra í stað mannúðar og ábyrgðar.

Þetta er þáttur um Lalla John, bókina, sárin sem lifa áfram og kerfi sem virðist enn ekki hafa lært.

Bak við þættina fer líka fram vinna utan stúdíós. Við hittum aðstandendur, fagfólk og ráðafólk og reynum að knýja fram raunverulegar breytingar.

Hægt er að styðja við gerð þáttana hér: Kennitala: 430818 2360 / Reikningur: 0133 26 014369

Hlusta á þátt á Apple Podcasts

Previous
Previous

Þáttur #4 Eitt af týndu börnunum um Stuðla, lyfin og kerfi sem brást

Next
Next

Þáttur #2 Sævar Hlynur Jónsson - Skólakerfið, fíkn og heimilisleysi