Þáttur #2 Sævar Hlynur Jónsson - Skólakerfið, fíkn og heimilisleysi
Týndu Strákarnir er hlaðvarp í tengslum við Strax í dag, framleitt af Samson.is.
Í þessum þætti segir Sævar Hlynur Jónsson frá því hvernig hann var dæmdur snemma af skólakerfinu sem vandræðaunglingur og hvernig sú stimplun ýtti honum síðar inn í neyslu, heimilisleysi og líf á ystu brún.
Þetta er ekki bara saga um einn mann heldur líka um fjölskyldu sem brotnar með honum, foreldra sem standa úrvinda eftir og móður sem á einum stað í örvæntingu veltir því fyrir sér hvort best sé að leyfa syni sínum að fara. Sævar ræðir líka þá sláandi staðreynd að það var æskuvinkona sem á endanum bjargaði lífi hans.
Þetta er ekki bara saga um einn mann. Þetta er saga um fjölskyldu sem brotnar með honum.
Bak við þættina fer líka fram vinna utan stúdíós. Við hittum aðstandendur, fagfólk og ráðafólk og reynum að knýja fram raunverulegar breytingar.
Hægt er að styðja við gerð þáttana hér: Kennitala: 430818 2360 / Reikningur: 0133 26 014369