Fröken Reykjavík í höndum kokkalandsliðsins
Landsliðskokkar taka yfir eldhúsið á Fröken Reykjavík föstudaginn 30. maí
Hér má sjá þau sem skipa liðið, Jafet Bergmann Viðarsson, Wiktor Pálsson, Ísak Aron Jóhannsson, Bjarni Ingi Sigurgíslason, Hugi Rafn Stefánsson, Snædís Xyza Mae Jónsdóttir, Andrés Björgvinsson, Logi Helgason, Gabríel Kristinn Bjarnason, Kristín Birta Ólafsdóttir og Bianca Tiantian Zhang / Kynningarmynd af landsliðinu
Lestrartími: 3 mínútur
Föstudaginn 30. maí tekur íslenska kokkalandsliðið yfir eldhúsið á Fröken Reykjavík Kitchen & Bar við Lækjargötu. Fimm rétta matseðill verður framreiddur af landsliðinu – engar æfingar, engin tilgerð, aðeins eitt kvöld með bestu matreiðslufólki landsins við stjórnina.
Snædís Xyza Mae Jónsdóttir leiðir landsliðið í eldhúsið föstudaginn 30. maí
Mynd: Facebook síða Fröken Reykjavík
Það er matreiðslumeistarinn Snædís Xyza Mae Jónsdóttir, yfirmatreiðslumaður á Fröken Reykjavík og núverandi þjálfari íslenska kokkalandsliðsins, sem leiðir hópinn þetta kvöld. Snædís hefur á skömmum tíma skipað sér meðal fremstu matreiðslumanna landsins og komið íslenskri matargerð á verðlaunapall á alþjóðlegum vettvangi. Hún tók fyrst þátt með kokkalandsliðinu á Ólympíuleikunum í matreiðslu árið 2016 og var síðar fyrirliði þegar liðið náði sínum besta árangri árið 2020 með þriðja sæti, í fyrsta sinn sem íslenska liðið komst á verðlaunapall á þessum stærsta vettvangi matreiðslukeppna.
Á ferlinum hefur Snædís m.a. unnið keppnina „Eftirréttur ársins“ árið 2018 og Arctic Challenge-keppnina, auk þess að vera nýverið sæmd hinni virtu Cordon Bleu-orðu Klúbbs matreiðslumeistara fyrir framúrskarandi störf í þágu fagmennsku og matreiðslu á Íslandi.
Með þessu einstaka kvöldi gefst gestum tækifæri á að upplifa landsliðið að störfum í sínu náttúrulega umhverfi utan keppnispressu og sviðsljósa, en með fagmennskuna að leiðarljósi. Matseðill kvöldsins er neðst í grein fyrir áhugasama.
Um íslenska kokkalandsliðið
Íslenska kokkalandsliðið er skipað reyndustu kokkum landsins sem hafa það að markmiði að efla faglega matreiðslu, vekja áhuga ungs fólks á faginu og styrkja orðspor íslenskrar matarhefðar erlendis. Liðið starfar undir Klúbbi matreiðslumeistara, fagfélagi sem stofnað var árið 1972 og hefur staðið að þátttöku Íslands í alþjóðlegum matreiðslukeppnum frá 1978.
Um Fröken Reykjavík Kitchen & Bar
Fröken Reykjavík er afslappaður og fágaður veitingastaður í hjarta borgarinnar. Rýmið sækir innblástur í klassískan Art Deco-stíl, þar sem hlýleiki og glæsileiki mætast áreynslulaust. Veitingastaðurinn býður bæði upp á notalegan bar og sérsvæði sem hentar vel fyrir minni hópa og einkasamkomur.
Matseðill staðarins er byggður á nútímalegri norrænni matargerð þar sem fersk, staðbundin hráefni eru í aðalhlutverki. Hvert hráefni er valið af kostgæfni til að tryggja gæði og bragð í hverjum rétti.
Hvort sem þú ert að leitast eftir vönduðum kokteil eða vilt njóta kvöldverðar ásamt úrvali gæða-vína úr vínherberginu okkar, þá tekur Fröken Reykjavík vel á móti þér.
Mynd: Facebook síða Fröken Reykjavík
Mynd: Facebook síða Fröken Reykjavík
📍 Fröken Reykjavík Kitchen & Bar, Lækjargata 12
📅 Föstudagur 30. maí
🪑 Borðapantanir hafnar – sæti takmörkuð