Þáttur 1: Hvað við erum að gera
Týndu Strákarnir er hlaðvarp í tengslum við Strax í dag, framleitt af Samson.is.
Í fyrsta þætti ræða Steindór Þórarinsson aka ADHD pabbi og Jón K. Jacobsson, Nonni Lobo, um hvað þetta verkefni er, hvað er verið að gera í hlaðvarpinu, á gólfinu og á bakvið tjöldin, og af hverju við leggjum svona mikla áherslu á skýr dæmi, samhengi og ábyrgð.
Upptökur og tæknileg framleiðsla eru unnar með Ásgeiri Páli, útvarpsmanni á K100, tekið upp í studioinu Raddir.
Við greinum á milli þess sem gestir segja, þess sem er staðfest með heimildum og þess sem er enn óljóst. Ítarleg kynning og siðareglur má finna hér = Siðareglur
Þátturinn er á Spotify og YouTube. Fyrsti þáttur er hljóðþáttur, en frá og með þætti tvö verður þátturinn einnig í mynd.
Bak við þættina fer líka fram vinna utan stúdíós. Við hittum aðstandendur, fagfólk og ráðafólk og reynum að knýja fram raunverulegar breytingar.
Hægt er að styðja við gerð þáttana hér: Kennitala: 430818 2360 / Reikningur: 0133 26 014369