„Ég vil að fólk finni fyrir einhverju“ Fríd er tónlistarkona Júnímánaðar

Hún syngur hægt, hugsar djúpt og hræðist ekki þögnina. Fríd er ekki að sækjast eftir athygli, hún er að miðla tilfinningu.

Fríd, réttu nafni Sigfríð Rut Gyrðisdóttir, er fyrsta listakonan sem tekur formlega sæti í nýrri viðtalsröð á samson.is: Tónlistarkona mánaðarins. Hugmyndin fæddist í maí þegar Katrín Myrra stakk upp á að Fríd fengi næsta sviðsljós. Í hverjum mánuði velur tónlistarkonan sjálf þá sem tekur við, og þannig myndast keðja íslenskra listakvenna sem varpa ljósi hver á aðra.

Það passar vel að Fríd sé önnur í röðinni, því hún vinnur sig aldrei inn með látum. Tónlist hennar læðist að manni með ró, festu og dýpt. Hún hefur verið að gefa út tónlist síðan 2018 og vakti athygli með plötunni Rebirth árið 2022. Þar speglaðist persónuleg umbreyting í tilraunakenndum hljóðheimi. Nýja EP-platan Hærra, sem kom út 16. maí, markar næsta skref – og er í fyrsta sinn sem hún syngur alfarið á íslensku.

Við settumst niður með Fríd til að ræða ferlið, breytingarnar og hvernig það er að velja sjálfa sig upp á nýtt.

„Ég fann röddina mína“

„Ég var að ganga í gegnum mjög erfiðan og umbreytandi tíma í mínu lífi þegar ég vann Rebirth,“ segir Fríd.
„Þegar ég kláraði plötuna fann ég sjálfstraust sem hafði vantað. Ég lærði í rauninni að velja sjálfa mig og mína hamingju, og að ekki leyfa öðrum að skilgreina mitt virði.“

Þess vegna heitir platan Rebirth. Þar fæðist ekki bara ný tónlist, heldur ný nálgun á sjálfsmynd. Röddin, mjúk og nánast kyrr, varð að leiðarljósi í þessari endurmótun. Hún hafði sungið frá unga aldri, en með klassískri raddþjálfun lærði hún að skoða röddina sem hljóðfæri – og leita inn á ný svæði.

Draumar, kyrrð og róleg ákefð

Fríd nefnir Enyu, Oklou og FKA Twigs sem áhrifavalda – listakonur sem skapa rými frekar en lög.
„Það er eitthvað við andrúmsloftið og ævintýralegheitin í tónlist þeirra sem dregur mig gjörsamlega inn. Ég verð forvitin, og það er það besta sem tónlist getur gert – vakið spurningar.“

Það er þessi tilfinning sem Fríd reynir að miðla. Ekki að segja allt, heldur að opna rými. Hún vinnur ekki með formúlur, og segir það hafa verið áskorun innan íslensks tónlistarlandslags.

„Ég geri mér alveg grein fyrir því að tónlistin mín er ekki hefðbundin og nær ekki alltaf til fjöldans. En ég held áfram – og alltaf bætist við fólk sem tengir.“

Nýr hljóðheimur á móðurmáli

Hærra, nýjasta EP-ið, markar tímamót – ekki bara sem verk, heldur sem skref yfir á íslensku. Það kom Fríd sjálfri á óvart.
„Mig langaði aldrei sérstaklega að semja á íslensku, mér fannst bara fínt að semja á ensku. En svo prófaði ég það, og þá opnaðist eiginlega nýr heimur. Textarnir flæða öðruvísi. Ég mun samt halda áfram að gera bæði – ég vil ekki festa mig í neinu.“

Þetta jafnvægi milli stíls og sveigjanleika endurspeglast í því hvernig hún nálgast tónlistarsköpun.
„Ég reyni að hugsa ekki um áheyrandann þegar ég sem. Það myndi bara trufla mig. Ég vil búa til tónlist sem ég tengi við – og vona að hún nái til einhvers. En það er alltaf fyrst og fremst fyrir mig.“

Útlit, vínyll og það sem er framundan

Þó Fríd sé lágstemmd í tónlist, þá er sjónræn hugsun orðin mikilvægari en áður.
„Ég hafði oft átt erfitt með að sjá eitthvað sjónrænt í tengslum við tónlistina mína. En með Hærra sá ég allt fyrir mér. Það var eins og ég væri að smíða hljóðheiminn og myndheiminn samtímis.“

Næstu skref eru bæði tilraunakennd og tilfinningaleg. Hún ætlar að gefa Hærra út á vínyl – draumi sem hún hefur gengið með frá upphafi – og vill prófa að beita röddinni á nýjan hátt.

„Mig langar alltaf að koma fólki á óvart með einhverju sem það hefur ekki heyrt áður – eða ekki heyrt á þennan hátt. Og mig langar að vinna meira með öðrum og gera eitthvað óvænt, en samt satt.“ Fríd vonar að tónlistin hennar veki eitthvað. „Ég vona að fólk finni fyrir einhverju. Að eitthvað hreyfist innra með því – jafnvel þó það sé bara forvitni.“ Það er ekki hægt að biðja um meira frá listamanni. Við þökkum Fríd fyrir að byrja keðjuna. Í ró, með rými og með rödd.

Tónlist sem sér og heyrist – þrjú myndbönd með Fríd

Fríd velur ekki bara hvernig lögin hljóma, heldur líka hvernig þau líta út. Í gegnum þrjú ólík myndbönd sýnir hún fjölbreytileikann í eigin rödd og rými, hvort sem það er í heilagri kyrrð Útskálakirkju, sveipuð dansi og dramatík í Biðstöðu, eða í hlýlegri nærveru í Found You sem hægt er að sjá á Youtbue rás hennar.

Hvert myndband stendur sjálfstætt en saman segja þau sögu um listamann sem hugsar í víddum, ekki bara takti.

Gates of Paradise

Biðstaða